Fjármálaráðuneytið hyggst gefa út ritið Þjóðarbúskapurinn þrisvar sinnum á næsta ári. Þetta er upplýst á vef fjármálaráðuneytisins.

Stefnt er að því að endurskoðuð þjóðhagsspá fyrir árin 2008 - 2010 komi út 20. janúar næstkomandi.

Þá er áætlað að þjóðhagsspá fyrir árin 2009 - 2013 komi út 12. maí 2009.

Enn fremur stendur til að gefa út þjóðhagsspá fyrir árin 2009 - 2013 hinn 1. október 2009.