„Tíminn er á þrotum, tíminn sem er nauðsynlegur til að búa til vinningsframboð." Þetta sagði Joe Biden í ávarpi fyrir framan Hvíta húsið fyrir skemmstu. Biden afturkallaði þar með framboð sitt til næsta forseta Bandaríkjanna.

Biden hefur boðið sig fram til embættisins tvisvar áður og þótti margt benda til þess að hann ætlaði fram af fullum krafti í þetta skiptið. Aðstoðarmenn hans hafa undanfarna mánuði þreifað fyrir sér um hve mikils stuðnings Biden kynni að njóta í framboði.

Ljóst er að Biden hefur honum ekki þótt eiga næga möguleika til að velta Hillary Clinton eða Bernie Sanders úr sessi sem næsta forsetaefni Demókrataflokksins.