Joe Borg, fiskimálastjóri ESB, segir alvarleg brot á reglum fiskveiðistjórnunarkerfis sambandsins undirstrika nauðsyn þess að endurskoða kerfið.
Þetta kemur fram á vef LÍÚ.
„Án virkrar stjórnunar tekst okkur aldrei að snúa af þeirri braut hnignunar sem nú einkennir evrópskan sjávarútveg,“ segir Borg. Þá kemur fram að brot á reglum fiskveiðistjórnunarkerfis Evrópusambandsins á árinu 2006 voru alls 10.362 talsins að því er kemur fram í sjöundu ársskýrslu framkvæmdastjórnar ESB.
„Þrátt fyrir að þetta séu um 1% færri brot en árið 2005 verður að hafa í huga að skipum í flotanum fækkaði um 10% á milli þessara ára,“ segir á vef LÍÚ.
Í skýrslunni kemur fram að þetta séu ekki tæmandi tölur þar sem þær byggja alfarið á upplýsingum einstakra aðildarríkja.
Borg segir í fréttatilkynningu , sem gefin var út í dag, að nauðsynlegt sé að gera þær breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu að reglur þess séu betra, sanngjarnari og stuðli að því að draga úr brotum.