Stjórn AFL spari­sjóðs ses. hef­ur ráðið Jóel Kristjáns­son í starf spari­sjóðsstjóra tímabundið þar til að samruna­ferli AFLs við Ari­on banka er lokið. Þessu greinir mbl.is frá.

Jóel er fyrr­ver­andi úti­bús­stjóri Ari­on banka á Sauðár­króki og hef­ur ný­lega látið af störf­um þar. Jóel er 59 ára gam­all og er sjáv­ar­út­vegs­fræðing­ur að mennt. Hann er fædd­ur og upp­al­inn á Sigluf­irði og hef­ur víðtæka reynslu og þekk­ingu úr at­vinnu­líf­inu og banka­starf­semi.