Jóhann Ævar Grímsson hefur verið ráðinn þróunarstjóri leikins efnis hjá Saga film. Jóhann Ævar hefur tekið þátt í að skrifa nokkra af vinsælustu sjónvarpsþáttum síðari ára auk kvikmyndanna Astrópíu og Bjarnfreðarsonar. Meðal sjónvarpsþátta sem Jóhann Ævar hefur skrifað, ásamt öðrum, eru Stelpurnar, vaktaseríurnar þrjár, Pressa 2 og 3 og Heimsendir.

Ráðning Jóhanns Ævars er liður í áherslubreytingu innan Saga film, sem felur í sér að fyrirtækið ætlar að styrkja aðkomu sína að þróun og skrifum efnis. Saga film hefur hingað til unnið í samstarfi við aðra um skrif og þróun verkefna, og mun halda því áfram, en ætlunin er að þróa meira af efni innanhúss.