Jóhann G. Möller hefur verið ráðinn forstöðumaður hlutabréfa hjá Stefni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Jóhann hefur starfað samfleytt á fjármálamarkaði frá árinu 2001 á sviði eignastýringar og ráðgjafar.Frá árinu 2006 hefur hann stýrt innlendum hlutabréfasjóðum Stefnis innan hlutabréfateymis félagsins og leitt þar uppbyggingu eignaflokksins sem fjárfestingakosts fyrir almenning og fagfjárfesta. Undir hlutabréfateymi Stefnis falla innlendir og erlendir hlutabréfasjóðir.

Jóhann er með B.S. próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, jafnframt því að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.