Jóhann Eðvald Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri iðnaðarheildsölunnar og viðgerðarfyrirtækisins Brammer.

Jóhann var rekstrarstjóri Brammer á Reyðarfirði á árunum 2013 og 2014 en var skipaður rekstrarstjóri Brammer á Íslandi um síðustu áramót.

Þar áður var hann mannvirkjastjóri hjá sveitarfélaginu Fjarðabyggð frá árinu 2007, þar sem hann sá um skipulags- og umhverfissvið, framkvæmdir og fjárfestingar.