Starfsmenn lögregluembættisins á Suðurnesjum fengu í dag sent bréf þar sem kemur fram að Jóhann Benediktsson hefur ekki sagt upp starfi sínu þar sem lögreglustjóri.

Í fréttum í síðustu viku var sagt að Jóhann hygðist biðjast lausnar. Jóhann fundaði með dómsmálaráðherra og var niðurstaðan sú að hann hefur ekki sagt upp starfi sínu og mun vinna að úrlausn mála hjá lögregluembættinu í samráði við dómsmálaráðuneytið.

Þetta kemur fram í frétt Vísis í dag.