Jóhann Möller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sjóðstýringarfyrirtækisins Stefni og mun taka við starfinu þann 1. ágúst næstkomandi. Jóhann hefur starfað á fjármálamarkaði í 20 ár og hjá Stefni frá árinu 2006 við stýringu á innlendum hlutabréfasjóðum auk þess að veita hlutabréfateymi félagsins forstöðu síðastliðin þrjú ár.

Hjá Stefni starfa 20 sérfræðingar í fjórum teymum við stýringu á verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðum. Einnig stýrir félagið eignum nokkurra samlagshlutafélaga sem stofnuð hafa verið í kringum framtaksfjárfestingar.

Jökull H. Úlfsson lét af störfum sem framkvæmdastjóri Stefnis í júní en Kristbjörg M. Kristinsdóttir rekstrarstjóri hefur gegnt stöðunni í millitíðinni.

„Ég vil bjóða Jóhann velkominn í starf framkvæmdastjóra Stefnis og er þess fullviss að hann mun af fagmennsku og metnaði leiða kraftmikinn hóp sérfræðinga félagsins í að efla Stefni enn frekar á komandi misserum“ er haft eftir Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur, stjórnarformanni Stefnis.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri  til að leiða þennan frábæra hóp starfsmanna Stefnis. Hjá Stefni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir viðamikilli þekkingu og reynslu á fjármálamörkuðum hér heima og erlendis,“ segir Jóhann.

„Markmið okkar er að vera áfram í fararbroddi í stýringu og uppbyggingu nýrra sjóða og sérhæfðra afurða, með vönduð vinnubrögð og hagsmuni viðskiptavina okkar að leiðarljósi.“