Jóhann Már Helgason stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vals. Jóhann, sem er 28 ára, er nú framkvæmdastjóri Aftureldingar.

Fram kemur á vef Vals um ráðningu Jóhanns, að hann muni hefja störf upp úr miðjum nóvember.