Jóhanna Sigurðardóttir fyrrverandi forsætisráðherra er orðin virk aftur á Facebook eftir að hafa gert rúmlega hálfs árs hlé á henni.

„Takk fyrir góðar viðtökur á þessari síðu gegnum tíðina. Nú langar mig að hleypa örlítið meira lífi í hana á ný eftir að ég hef hvílt mig á pólitíkinni. Sjaldan hefur mér liðið betur. Búin að kynnast fjölskyldunni aftur og farin að rækta sjálfa mig,“ segir Jóhanna á Facebook . Jóhanna hefur gert nokkra uppfærslur á síðunni í dag en fyrir þann tíma hafði hún ekki verið hreyfð síðan þann 30 apríl.

Nýlega kom út bók um Jóhönnu sem hún og Jónína Leósdóttir, eiginkona hennar, skrifuðu saman. Sagt er frá bókinni á vefnum GayIceland í dag og á Facebook-síðunni vísar Jóhanna einmitt í þá umfjöllun.