Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af bréfi Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans frá því fyrr í dag.

Í yfirlýsingunni lýsir forsætisráðherra yfir miklum vonbrigðum með þá afstöðu sem bankastjórinn hefur ákveðið að taka í þessu máli.

„Greinilegt er að bankastjórinn er ósammála því mati ríkisstjórnarinnar að mannabreytingar í Seðlabankanum nú, séu til þess fallnar að auka traust og trúverðugleika bankans,“ segir í yfirlýsingu Jóhönnu.

„Það er hans afstaða og verður hann að taka ábyrgð á henni.“

Þá kemur fram að forsætisráðherra mun að öðru leyti ekki bregðast við einstökum atriðum sem fram koma í bréfi bankastjórans en vinna áfram að framgangi „þess mikilvæga verkefnis að skapa frið um helstu stofnanir samfélagsins, ekki síst í þeim tilgangi að endurreisa að fullu traust á fjármálakerfinu,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

„Er frumvarp það sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi og varðar endurskipulagningu á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands mikilvægt í því sambandi og brýnt að það fái eins skjóta afgreiðslu á Alþingi og unnt er,“ segir jafnframt í tilkynningu forsætisráðherra.