Jóhannes Baldvin Pétursson hefur verið ráðinn inn á nýtt svið við Háskólann á Bifröst sem sér um aðra menntastarfsemi. Mun hann fyrst í stað hafa umsjón með námskeiðum sem eru í gangi hverju sinni, en starfshlutfall hans er 50%.

Jóhannes er að ljúka BS gráðu í viðskiptafræði frá háskólanum og hefur hann unnið undanfarið ár að skýrslugerði fyrir skólann auk þess sem hann hefur verið í ýmsum verkefnum fyrir Rannsóknarsetur verslunarinnar.