Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka en Hagar eru í söluferli hjá Arion banka og verður endanleg tilhögun þess og framkvæmd kynnt á næstunni.

Fram kemur að ákvæði úr samkomulagi því sem Arion banki gerði við Jóhannes í febrúar sl. um tilhögun á stjórnun og sölu Haga hafa verið felld úr gildi, þar með talinn forkaupsréttur hans á 10% hlutafjár í Högum.

Þá kemur einnig fram að Jóhannes kaupir úr samstæðu Haga þrjár sérvöruverslanir og hlut Haga í matvöruverslunum í Færeyjum.

„Með samkomulaginu næst nauðsynleg sátt sem er forsenda framvindu sölunnar á Högum og áframhaldandi stöðugleika í rekstri að mati bankans,“ segir í tilkynningunni.

Undir samstæðu Haga falla Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Day og Warehouse. Jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur. Arion banki eignaðist 95,7% hlut í Högum við yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 í október 2009.

Í samkomulaginu felst að Jóhannes kaupir allan eignarhlut Haga i færeyska félaginu SMS sem er 50%. SMS rekur matvöruverslanir þar í landi en þær eru ótengdar verslunarrekstri félagsins á Íslandi og eina eign Haga utan Íslands. Þá kaupir Jóhannes sérvörubúðirnar Top Shop, Zara og All Saints, „enda er það niðurstaða Arion banka að ekki sé æskilegt að selja þær með samstæðunni vegna tengsla milli eigenda viðkomandi umboða og fjölskyldu Jóhannesar,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

Kaupverð þessara eigna er 1.237,5 milljónir króna sem er nokkru hærra en bókfært verðmæti þeirra á efnahagsreikningi Haga og er sanngjarnt verð að mati sérfræðinga bankans.

Auk þess að falla frá forkaupsrétti eru í samkomulaginu ströng skilyrði um að Jóhannes og aðilar honum nátengdir efni ekki til samkeppni við Haga næstu 18 mánuði eftir undirritun samningsins. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Jafnframt kaupir Jóhannes eignir á markaðsvirði; bíl, íbúð og sumarhús sem hann hefur haft til umráða.

„Þær breytingar sem felast í samkomulaginu eru að mati bankans nauðsynlegur undanfari sölunnar á Högum,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka í tilkynningunni.

„Þekking Jóhannesar á rekstri Haga hefur nýst vel til að koma félaginu yfir erfiða hjalla en nú taka aðrir við og ljúka söluferlinu. Það er mat bankans að hagsmunir Jóhannesar og bankans fari ekki lengur saman þar sem Jóhannes hefur lýst því yfir að hann hyggist bjóða í félagið í því söluferli sem nú fer af stað og því óhjákvæmilegt að gera breytingar sem setja alla fjárfesta við sama borð.“

Þá segir Höskuldur að Jóhannes gefi eftir 10% forkaupsrétt og samþykki 18 mánaða samkeppnisbann.

„Ákvarðanir um að selja sérleyfisverslanir skýrast af því að umboðin fyrir þær eru ekki föst í hendi vegna persónulegra tengsla og því ekki forsvaranlegt að selja þær með Hagasamstæðunni,“ segir Höskuldur.

„Salan á 50% eignarhlut í SMS byggist á því að þar er um eign að ræða sem tilheyrir ekki starfsemi Haga hér á landi. Að auki er verið að selja þessar eignir á góðu verði fyrir Haga. Eftir standa Hagar sem söluvænlegt fyrirtæki í góðum rekstri.“