© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Jóhannes Rúnarsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Strætó. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Jóhannes hefur nokkra reynslu af stjórnunarstörfum og hefur meðal annars unnið hjá Símanum og Skiptum. Undanfarið hálft ár hefur hann starfað sem sviðsstjóri rekstrarsviðs Stræó.

Jóhannes hefur lokið prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, með áherslu á fjármál, og hefur auk þess sótt fjölmörg námskeið á sviði starfsmannamála, fjármála og innkaupamála. Jóhannes var valinn úr hópi 86 umsækjenda og hélt Capacent utan um ráðingarferlið fyrir stjórn Strætó bs.

„Það eru að eiga sér stað miklar breytingar á áherslum í samgöngumálum og samgönguvenjum og þar gegnir Strætó mikilvægu hlutverki. Það er okkar hlutverk að fylgjast með og reyna að bregðast við þörfum og óskum almennings. Við munum því setja okkur metnaðarfull markmið um fjölgun farþega í samræmi við stefnu eigenda í nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins,“ segir Jóhannes um nýja starfið.

Jóhannes er giftur Lilju Bjarnsþórsdóttur sérkennara og búa þau í Kópavogi.