Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sem hefur setið í stjórn Kaupþings og sat áður í skilanefnd og slitastjórn Kaupþings hefur tekið þá ákvörðun að segja sig úr stjórn félagsins frá og með deginum í gær. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kaupþingi.

„Jóhannes Rúnar Jóhannsson var skipaður í skilanefnd í október 2008 í kjölfar þess að Kaupþing (þá Kaupþing banki hf.) varð ógjaldfært. Jóhannes var skipaður í slitastjórn Kaupþings í janúar 2012 í kjölfar þess að skilanefnd var lögð niður. Jóhannes gegndi lykilhlutverki í endurskipulagningu Kaupþings sem lauk í desember 2015 þegar nauðasamningur félagsins við kröfuhafa var endanlega staðfestur. Jóhannes sat í bráðabirgðastjórn Kaupþings fram til mars 2016 og frá þeim tíma í stjórn félagsins,“ segir í yfirlýsingunni.

„Þetta hefur gengið vel eftir neyðarsamninginn og ég hef tekið þátt í þessu ferli og þetta er í góðu horfi,“ segir Jóhannes Rúnar í samtali við Viðskiptablaðið.

Haft er eftir Jóhannesi Rúnari í tilkynningunni að: „Eftir átta áhugaverð og krefjandi ár í vinnu fyrir Kaupþing, fyrst í slitameðferð félagsins, sem meðlimur í skilanefnd og síðar slitastjórn og síðan í kjölfar nauðasamnings Kaupþings, sem meðlimur í stjórn félagsins, þá hef ég tekið ákvörðun um að snúa mér að öðrum verkefnum. Mikill árangur hefur náðst á þeim tíma sem liðið hefur frá nauðasamningi Kaupþings og er félagið byrjað að greiða út til hagsmunaaðila þess og áætlanir liggja fyrir um hvernig undið verður ofan af starfsemi félagsins. Ég tel því að nú sé réttur tími fyrir mig að segja mig úr stjórn félagsins og leita á önnur mið. Ég er mjög stoltur af því sem við höfum áorkað hjá Kaupþingi og vil nota tækifærið til að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að ná þeim árangri, ekki síst starfsmönnum Kaupþings.“

Haft er eftir Alan J. Carr, stjórnarformanni Kaupþings að stjórn Kaupþings þakki Jóhannesi fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og þá sér í lagi þeim umbreytingartímum sem fylgdu í kjölfar nauðasamnings.