Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur ráðið Jóhannes Stefánsson sem aðstoðarmann sinn.

Jóhannes er með  réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi og með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík, en hann stundaði auk þess skiptinám við Kaupmannahafnarháskóla. Hann útskrifaðist einnig með BA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands.

Jóhannes hefur starfað sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og Fréttablaðinu, en einnig sem fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2. Jóhannes hefur auk þess starfað fyrir sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík, Arion banka og Lex lögmannsstofu.

Illugi mun eftir ráðningu Jóhannesar hafa tvo aðstoðarmenn, en Sirrý Hallgrímsdóttir er fyrir aðstoðarmaður Illuga.