Tryggingamiðstöðin (TM) hefur ákveðið að styrkja aðstandendur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum til uppbyggingar á þeim mannvirkjum sem skemmdust eða eyðilögðust í eldsvoða í lok maí.

Um er að ræða umgjörð Þjóðhátíðar sem haldin er árlega um verslunarmannahelgina í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum.

Guðbjörg Karlsdóttir, útibústjóri TM í Vestmannaeyjum segir í tilkynningu frá félaginu að mannvirkin hafi ekki verið tryggð og tjónið er því alfarið á kostnað eigenda. Þá segir hún TM eiga djúpar rætur í Vestmanneyjum og því hafi verið ákveðið að kosta allt efni sem þarf til að endurgera mannvirkin.

„TM mun einnig aðstoða fórnfúsa sjálfboðaliða í Vestmannaeyjum af fremsta megni til að halda megi enn á ný glæsilega Þjóðhátíð í Herjólfsdal,” er haft eftir Guðbjörgu í tilkynningunni.