Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2010 er talin velta um 700-800 milljónum. Allt að 17.000 manns mættu á hátíðina um helgina og er það mesti fjöldi frá upphafi. Þjóðhátið hefur verið haldin árlega síðan 1901, en á rætur sínar að rekja til ársins 1874 þegar Eyjamenn komust ekki upp á fastalandið til að fagna þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar.
Tekjur af miðasölu eru verulegur hluti tekna Eyjamanna. Miðaverð í ár var 13.900 kr. en 6.000 kr. ef mætt var á sunnudeginum. Því má ætla að miðasölutekjur hafi numið um 150 -200 milljónum kr.