Þær fréttir voru að berast úr Seðlabankanum að þjóðin yrði ekki upplýst um skuldastöðu sína fyrr en á morgun. Það verður gert á blaðamannafundi kl. 11.

Fulltrúar Seðlabankans kynntu þingnefndum stöðuna í gær en báðu síðan þingmenn um að halda henni leyndri. Þeir vildu vinna upplýsingarnar betur.

Þann trúnað hafa þingmenn virt og ekkert upplýst um málið.