Útgáfa krónubréfa,svokallaðra jöklabréfa, er einn stærsti óvissuþátturinn um gengi krónunnar á næstu vikum. Áhrifin geta ýmist orðið til að styrkja eða veikja krónuna, að því er fram kemur í Hálffimm fréttum Kaupþings. Þar segir að jöklabréf fyrir um 75 milljarða króna séu á gjalddaga í janúar að meðtöldum vaxtagreiðslum. Síðustu mánuði hafi útgáfan að mestu legið niðri og útgefendur hafi haldið að sér höndum.

Fram kemur að ávallt þegar stórir gjalddagar séu í nánd komi fram vangaveltur um hvort bréfin verða framlengd. Hingað til hafi stórir gjalddagar ekki haft teljandi áhrif á gjaldeyrismarkaði og stærstur hluti bréfanna hafi ávallt verið framlengdur eða ný bréf gefin út í stað hinna gömlu.

Beðið eftir vaxtaákvörðun á morgun

„Í haust voru um 100 ma.kr á gjalddaga en mánuðina fyrir gjalddagana var stærstum hluta krónubréfanna framlengt. Sama þróun hefur ekki átt sér stað nú sem má væntanlega rekja til þess óróa sem er á alþjóðamörkuðum þessa dagana – en krónubréf eru í eðli sínu áhættusöm fjárfesting vegna gengisáhættu bréfanna. Má því ætla að minni áhugi sé hjá fjárfestum til að kaupa þau nú sem gerir útgefendum bréfanna erfiðara fyrir. Að mati Greiningardeildar munu erlendir aðilar bíða átekta fram yfir vaxtaákvörðunarfund Seðlabankans og jafnvel eitthvað fram yfir áramót í þeirri von um að öldurnar lægi á alþjóðamörkuðum. Í ljósi mikils vaxtamunar við útlönd og hárra vaxta mun útgáfan áfram verða freistandi fjárfestingarkostur,“ segir í Hálffimm fréttum.

Í fréttinni kemur einnig fram að svo virðist sem T.D. Securities, umsjónaraðili u.þ.b. 60% af útgáfu krónubréfa, sé bjartsýnn á áframhaldandi krónubréfaútgáfu. Í síðustu viku hafi fyrirtækið spáð því að íslenska krónan myndi standa sig hvað best af hávaxtagjaldmiðlum á næsta ári ef tekið sé mið af vöxtum og gengisþróun. Stóra spurningin sé hins vegar að sjálfsögðu hvenær ákvarðanir um framhald útgáfunnar verði teknar og hvort flæðisáhrifin á krónuna, þ.e.a.s. eftirspurn eða framboð eftir henni,  hafi að einhverju leyti komið fram nú þegar á gjaldeyrismörkuðum.