Jakob Jakobsson og Guðmundur Guðjónsson, stofnendur og eigendur Jómfrúarinnar, hafa selt veitingastaðinn til Birgis Bieltvedt og Jakobs Einars Jakobssonar, sonar annars stofnandans.
Nýir eigendur hyggjast lengja opnunartímann og efla veisluþjónustu staðarins.
Birgir Bieltvedt á hlut í fleiri veitingastöðum eins og Domino's Pizza, Joe & the Juice og Gló.
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu í morgun fylgir fasteign Jómfrúarinnar með í kaupunum.