Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér fyrir lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs (VG) í NV-kjördæmi í næstu þingkosningum í vor. Í yfirlýsingu sem Jón hefur sent frá sér um málið segist hann hafa orðið fyrir vonbrigðum með það hvernig haldið hafi verið á mörgum stefnumálum VG síðustu misseri og hafi þar verið vikið frá þeim gildum sem flokkurinn var stofnaður um.

„Afstaða mín og skoðanir í þeim málum eru öllum kunnar. Ég nefni hér umsóknina um aðild að ESB þvert á grunnstefnu flokksins og gefin kosningaloforð, niðurskurð til velferðarmála, ásamt því hvernig hert hefur verið með margvíslegum hætti að íbúum á landsbyggðinni,“ skrifar Jón.

Hann segir orðrétt:

„Við Alþingiskosningar 2009 fékk Vinstrihreyfingin grænt framboð yfirburða kosningu í Norðvesturkjördæmi og 3 þingmenn. Enginn  vafi er á að einörð stefna og áherslur flokksins og okkar sem skipuðum þá forystusveit, átti hljómgrunn og stuðning meðal íbúa  kjördæmisins og raunar langt út fyrir mörk þess. Kjörorðin  -vegur til framtíðar- vörðuð trausti og trúnaði voru aðalsmerki Vg í þeirri kosningabaráttu og eftir þeim gildum hef ég starfað. Ég hef setið á Alþingi sem fulltrúi VG frá því flokkurinn fékk fyrst kjörna menn á þing 1999 og átt virkan hlut í að móta grunnstefnu flokksins og áherslur ásamt mörgu öðru góðu fólki.  Það hafa orðið mér vonbrigði hvernig haldið hefur verið á mörgum stefnumálum VG síðustu misseri og vikið frá þeim gildum sem hann var stofnaður um.

Þótt ég hafi nú ákveðið að gefa ekki kost á mér til framboðs fyrir VG við næstu alþingiskosningar mun ég áfram leggja mitt af mörkum  og berjast fyrir þær  hugsjónir og grunngildi sem ég hef verið talsmaður fyrir og starfað eftir.“