Frumkvöðlaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2012 hlýtur Jón Ágúst Þorsteinsson, stofnandi og forstjóri Marorku.

Marorka er öflugt hugbúnaðarfyrirtæki og helstu verkefni félagsins miða að því að þróa búnað sem ætlað er að draga úr eldsneytiskostnaði skipaflotans. Þessi þróun er rétt að byrja en Marorka er nú þegar leiðandi á sínu viði í heiminum með áherslu á orkunýtingu í skipaiðnaði.

Meðal viðskiptavina Marorku eru nú Eimskip, Samskip, fjölmörg sjávarútvegsfyrirtæki, danska skipafélagið Mærsk, kínverska félagið Cosco Group og fleiri.

Starfsemi Marorku er gott dæmi um mikilvægt frumkvöðlastarf. Í þessu tilviki er frumkvöðullinn á undan sinni samtíð því það er ljóst að skipaútgerðir mun gera samskonar kröfu um hagræðingu í rekstri skipaflota heimsins og nú þegar hefur verið gert bæði í bíla- og flugvélaframleiðslu.

Það kemur til vegna aukinnar áherslu á eldsneytissparnað og ekki síst vegna umhverfismála þar sem áhersla er lögð á að draga úr loft- og hafmengun. Vaxtatækifæri Marorku eru því gríðarleg. Um 50 þúsund skip gætu notað búnað Marorku þegar fram í sækir.

Í áramótatímariti Viðskiptablaðsins, sem kom út í morgun, má finna ítarlegt viðtal við Jón Ágúst.