Stjórn Íslandsstofu hefur ákveðið að ráða Jón Ásbergsson í stöðu framkvæmdarstjóra Íslandsstofu. Jón er viðskiptafræðingur að mennt og hefur meðal annars starfað sem framkvæmdarstjóri Loðskinns á Sauðárkróki, Hagkaupa og síðast Útflutningsráðs Íslands.

Íslandsstofa var stofnuð með nýjum lögum í lok apríl á þessu ári og er markmiðið að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendrum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins.

Undir merkjum Íslandsstofu er sameinuð starfsemi sem áður var á hendi Útflutningsráðs Íslands og markaðssviðs Ferðamálastofu, að því er kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu. Einnig verður náið samstarf við utanríkisþjónustuna og kynningarmiðstöð lista- og menningar í landinu.

Íslandsstofa tók formlega til starfa 1. júlí. Formaður stjórnar er Friðrik Pálsson. Starf framkvæmdarstjóra var auglýst síðla í júní og sóttu þrjátíu um starfið. Stjórnin fjallaði um ráðningarmálið á sex formlegum fundum og voru þeir kallaðir til viðtals sem stjórnarmenn voru sammála um að helst kæmu til greina í starfið.