Afskráning FL Group mun veita stjórnendum félagsins tækifæri til að leggja meiri áherslu á langtímamarkmið og minnkar einnig áhrif vegna skammtímamarkmiða sem tengjast hlutabréfamarkaði,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group í tilkynningu frá félaginu.

„Sú staðreynd að um 83% hluthafa félagsins hafa þegar ákveðið að halda hlut sínum í FL Group að afskráningu lokinni sýnir vel þá trú sem þessir aðilar hafa á FL Group, stefnu stjórnar og framkvæmdastjórnar,“ segir Jón Ásgeir.

Hann segir að þeir hluthafar sem kjósa fremur að eiga hlut í skráðu félagi hafa möguleika á að fjárfesta í Glitni.

Glitnir er ein af kjarnafjárfestingum FL Group „sem við getum óhikað mælt með,“  segir Jón Ásgeir.