Jón Ásgeir Jóhannesson er formaður stjórnar Stoða Invest, fjárfestingafélagsins sem kaupir fjölmiðla- og fjarskiptafélög Baugs. Aðrir í stjórn Stoða eru Kristín Jóhannesdóttir og Hreinn Loftsson.

Eins og fram kom í Viðskiptablaðinu í dag kaupir Stoðir meðal annars 365, Teymi og 365 Media sem gefur út Nyhedsavisen í Danmörku. Þórdís Sigurðardóttir er forstjóri Stoða.

Hún sagði í samtali við vb.is fyrr í dag að breytingar á eignarhaldi hefðu ekki neinar breytingar í för með sér fyrir rekstur viðkomandi félaga.