365 fundur (aðalfundur)
365 fundur (aðalfundur)
© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)
Mál Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni RÚV verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness 25. október nk. samkvæmt dagskrá dómsins. Málið byggir á því að Jón Ásgeir telur að fréttir Svavars, er fjölluðu um viðskipti hans og viðskiptafélaga hans, hafi ekki verið réttar og í þeim hafi falist ærumeiðandi ummæli. RÚV neitaði að birta leiðréttingu á fréttinni, eins og Jón Ásgeir fór fram á, og stóð við hana. Úr varð að lokum að Jón Ásgeir stefndi Svavari eins og fyrr segir