Jón Ásgeir Jóhannesson hefur skilað lista yfir eignir sínar til breskra dómstóla samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Tvisvar hefur verið leitað til dómstólsins til að fá listann afhentan en þau svör hafa fengist að eignalistinn er ekki opinbert skjal.

Þegar Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar, hefur verið spurð um skil á listanum hefur hún ekki viljað staðfesta að honum hafi verið skilað. Jóni Ásgeiri bar að skila  lista yfir allar eignir sínar í síðasta lagi 17. maí sl í kjölfarið á að honum var birt stefna slitastjórnar og eignir hans frystar.