„Ég ætla að höfða sérstakt mál á hendur Steinunni [Guðbjartsdóttur, formanni slitastjórnar Glitnis] vegna eiðsvarinna lyga hennar fyrir dómstólum,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson í viðtali í Viðskiptablaðinu í dag.

Hann vitnar þar til upplýsinga sem fram koma í eiðsvörnum vitnisburði Steinunnar Guðbjartsdóttur fyrir dómi, meðal annars á þá leið að Jón Ásgeir, eða félög hans, eigi mögulega innstæður í breskum bönkum upp á 202 milljónir punda, eða tæplega 40 milljarða króna.

Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, hefur nú komið þeim skilaboðum til slitastjórnar að innstæðurnar séu í eigu Iceland, eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 á þriðjudagskvöld.

Jón Ásgeir segir Steinunni hafa reynt að afvegaleiða dómstólana með vitnisburði sínum.

-Nánar í Viðskiptablaðinu