Jón Ásgeir Jóhannesson spyr Arion banka hvar listinn sé í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Umræddur listi er svokallaður aftökulisti sem Viglundur Þorsteinsson, fyrrverandi eigandi BM Vallá, sakaði Arion banki um að hafa safnað saman um lífvænleg fyrirtæki sem ákveðið hefði verið að taka frá eigendum sínum.

Kunnugleg frásögn

Jón Ásgeir segir frásögn Víglundar vera kunnuglega og að hann hafi heyrt svipaða frásögn frá fyrrum starfsmanni Arion banka haustið 2010. Sá á að hafa sagt Jóni Ásgeiri að bankinn ætlaði að taka Haga hf. af fjölskyldu hans. Eftir snörp orðaskipti við starfsmann Arion banka á starfsmaðurinn að hafa viðurkennt og sagt þjóstuglega „Þú ert á listanum!“. Eftir að Jón Ásgeir spurði um hvaða lista var að ræða sagði starfsmaðurinn: „Nú á listanum um aðila sem á að kála.“

Eftir þetta samtal segir Jón Ásgeir að bankinn hafi tekið yfir Haga og sett á markað. Þar seldi bankinn bréfin á 40% lægra verði en fjölskylda Jón Ásgeirs og erlendir fjárfestar höfðu boðið í félagið. Einu svörin segir Jón Ásgeir hafa verið að hann væri á listanum.

Skorar á bankann

Jón Ásgeir skorar á Arion banka í niðurlagi greinarinnar að birta listann og segja til um hver bjó hann til. Hann segir ekki hægt að þegja lengur um tilvist listans þar sem of margir viti að hann er til. Að lokum spyr hann: „Hvaða listi var svo merkilegur að það var óhætt að taka eignir af mönnum sem kunnu með þær að fara og höfðu byggt upp og í ofanálag selja þær eignir á lægra verði en bankinn gat selt þær á?“

Enginn „aftökulisti“ til

Þess má geta að Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, hefur áður sagt að ekki sé til neinn „aftökulisti“ innan bankans. Allt tal um slíkt sé fráleitt. Markmið bankans sé að hámarka endurheimtur og það sé hagur hans að hjálpa þeim fyrirtækjum sem eru rekstrarhæf. Það þjóni ekki hagsmunum bankans að ganga á fyrirtæki sem geta staðið í skilum.

Haraldur Guðni sagði að með listanum vísi Víglundur líklegast til lista yfir 40 stærstu skuldara bankans við yfirtöku Arion banka á eignum gamla bankans. Á þeim lista hafi verið bæði góð og slæm lán en Haraldur tekur fram að hann geti ekki tjáð sig um málefni einstakra fyrirtækja. Listinn sé hins vegar á engan hátt „aftökulisti“, aðeins eignir sem stöðu að baki skuld gamla bankans.

„Hvað varðar lista yfir fyrirtæki þá var það þannig að við stofnun Arion banka undir árslok 2008 þegar tilteknar eignir og skuldir voru yfirfærðar frá Kaupþingi yfir til bankans var ágreiningur um virði eignanna. Ágreiningurinn endurspeglaði þá miklu óvissu sem á þessum tíma var ríkjandi um stöðu fjölmargra íslenskra fyrirtækja.  Til að leysa ágreininginn var samið um að eftir flutning eignanna til Arion banka myndi Kaupþing skulda Arion banka.

Jafnframt var kveðið á um það í samkomulaginu að ef virði 40 stærstu fyrirtækjalána sem yfirfærð voru ykist á næstu árum þá myndi ákveðið hlutfall þeirrar virðisaukningar koma til lækkunar á þessari skuld Arion banka. Þessi 40 fyrirtækjalán voru allt frá því að vera mjög góð lán sem innheimtast að fullu til lána þar sem líkur á endurheimtum voru takmarkaðar. Hvort verið er að vísa til þessa lista veit ég ekki en hagur Arion banka hvað varðar þessi fyrirtæki, sem og öll önnur fyrirtæki sem eru í viðskiptum við bankann, felst einfaldlega í framtíðarvelgengni þeirra,“ sagði Haraldur Guðni í skriflegu svari við fyrirspurn Viðskiptablaðsins um málið.