Fjórir eru ákærðir í hinu svokallaða Aurum máli og voru þeir allir viðstaddir þegar málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur nú morgun. Ákærðu lýstu allir yfir sakleysi fyrir dómi í morgun en málinu var svo frestað um rúma viku. Erlendir fjölmiðlar fylgust meðal annars með þingfestingunni. Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í samtali við þá ekki útilokað að hann snúi aftur í viðskiptalífið.