Jón Ásgeir Jóhannesson var sýknaður í Aurum-málinu. Lárus Welding, fyrrum bankastjóri Glitnis, var hins vegar dæmdur í eins árs fangelsi fyrir þátt sinn í málinu. Þetta kemur fram í frétt Mbl.is

Magnús Arnar Ásgrímsson, sem var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, var dæmdur í tveggja ára fangelsi og Bjarni Jóhannesson, sem áður var viðskiptastjóri hjá bankanum var sýknaður. Enginn ákærðra var viðstaddur við dómsuppkvaðninguna í dag.

Jón Ásgeir var ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum Lárus og Magnúsar Arnars en til vara fyrir hylmingu og til þrautavara fyrir peningaþvætti og fyrir að hafa beitt Lárus og Bjarna þrýstingi og hvatt til þess að Lárus og Magnús Arnar samþykktu að veita félaginu FS38 ehf. 6 milljarða króna lán frá Glitni, segir í frétt Mbl.

Þetta er annað sinn sem málið er tekið fyrir í héraðsdómi - en árið 2014 voru allir ákærðu sýknaðir. Hins vegar var sá dómur dæmdur ógildur af Hæstarétti vegna þess að ummæli sérfróðs meðdómara voru þess eðlis að hann hafi verið óhlutdrægur í garð ákæruvaldsins fyrir uppkvaðningu dómsins.

Því var dómurunum skipt út og því hófst málsmeðferð aftur í haust.

Lárus Welding er dæmdur til þess að greiða 10,3 milljón króna málskostnað auk útlagðs kostnaðar. Magnús varð einnig að greiða 8,2 milljónir í málskostnað. Ríkissjóður var dæmdur 13,9 milljónir í málskostnað vegna sýknu Jóns Ásgeirs og 9,4 milljóna vegna sýknu Bjarna.