Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group segir í tilkynningu frá félaginu að sú staðreynd að yfir tvö þúsund hluthafar FL Group samþykktu kauptilboð í hluti sína í f élaginu staðfestir það mat stjórnar að margir af smærri hluthöfum félagsins gætu séð hagsmunum sínum betur borgið með því að eiga hlutabréf í Glitni sem skráðu félagi, fremur en FL Group sem óskráðu félagi.

„Þetta gefur einnig til kynna að tilboðið hafi þótt sanngjarnt,“ segir Jón Ásgeir.

„Í þessu samhengi er vert að halda því til haga að umrætt kauptilboð er alfarið umfram skyldu félagsins og sett fram í þeim tilgangi að vernda hagsmuni smærri hluthafa. Að sama skapi er ánægjulegt að eigendur 84% af hlutafé félagsins munu áfram eiga hluti sína í FL Group og sýna með því trú sína á félaginu og  framtíð þess,“ segir Jón Ásgeir en þrátt fyrir að smærri hluthafar séu margir eiga þeir aðeins um 16% í félaginu.

84% af félaginu verður því áfram í sömu höndum.