Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarmaður rektors og þróunarstjóri HÍ, verður aðstoðarrektor vísinda og kennslu jafnframt því að vera prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði.

Aðstoðarrektor vísinda og kennslu mun hafa yfirumsjón með málefnum vísindasviðs og kennslusviðs og framkvæmdastjóri fjármála og reksturs hefur yfirumsjón með málefnum fjármálasviðs, framkvæmda- og tæknisviðs, markaðs- og samskiptasviðs og starfsmannasviðs. Þessar breytingar eru tímabundnar og gilda til loka skipunartíma núverandi rektors sem er 30. júní 2010.