Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn forseti Aurora-háskólanetsins og mun leiða það næstu tvö ár. Hann tekur við af David Richardson, rektor East Anglia háskólans í Englandi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Aurora-netið er skipað níu evrópskum háskólum sem eru með um þrjú hundruð þúsund nemendur. Háskólarnir „eiga það sameiginlegt að vera framúrskarandi í rannsóknum samhliða því að leggja ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð og fjölbreytileika nemenda,“ að því er segir í fréttatilkynningu.

„Alþjóðlegt samstarf skiptir okkur í Háskóla Íslands miklu máli og höfum við notið afar góðs af Aurora-netinu á undanförnum fjórum árum. Ég hef setið í stjórn háskólanetsins sl. þrjú ár og hlakka mjög til að stýra því næstu tvö árin,“ er haft eftir Jón Atla í tilkynningunni.

„Samstarfið á milli háskólanna er gott og tenging okkar við þá mun halda áfram að efla Háskóla Íslands með nýjum hugmyndum og verkefnum. Háskóli Íslands er minnsti háskólinn í netinu, en samtals stunda um 300.000 nemendur nám við þessa níu háskóla. Að rektor Háskólans sé við stjórnvölinn í Aurora netinu styrkir okkur enn frekar hvað þetta varðar. Þetta er bæði mikill heiður fyrir mig og Háskóla Íslands.“

Háskólarnir í Aurora-netinu eru auk Háskóla Íslands, Vrije-háskólinn í Amsterdam (Hollandi), East Anglia háskóli (Englandi), Háskólinn í Duisburg-Essen (Þýskalandi), Háskólinn í Innsbruck (Austurríki), Háskólinn í Napolí – Federico II (Ítalíu), Roviri i Virgili háskólinn í Tarragona (Spáni), Háskólinn í Aberdeen (Skotlandi) og Háskólinn í Grenoble-Alpes (Frakklandi).