Jón Axel Ólafsson hefur verið ráðinn markaðs- og þróunarstjóri Árvakurs. Auk hefðbundinna verkefna á sviði markaðsmála fyrir fjölmiðla félagsins, Morgunblaðið, 24 stundir og mbl.is, mun Jón leiða þróun nýrra viðskiptatækifæra á sviði útgáfu og fjölmiðlunar, þar á meðal á sviði stafrænnar miðlunar á internetinu.

Undanfarin ár hefur verið unnið að umfangsmiklum breytingum á starfsemi og rekstri Árvakurs, sem lengst af var útgáfufélag Morgunblaðsins.

Jón Axel hefur unnið sem ráðgjafi fyrir Árvakur síðan vorið 2007 en hann er viðskipta- og rekstrarhagfræðingur og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað við fjölmiðla síðan 1983 og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á dagskrárgerð, markaðssetningu og stjórnun.