Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, keypti í dag bréf í Össuri fyrir eina milljón danskra króna, eða sem samsvarar um 21 milljón íslenskra króna. Félagið er skráð í Kauphöllina á Íslandi og í Danmörku.

Jón á nú 458834 hluti í félaginu. Verðmæti þeirra, miðað við kaupverðið á hlutunum í dag, er 5,7 milljónir danskra króna. Það samsvarar um 120 milljónum íslenskra króna.