Jón Finnbogason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis hf., en hann hefur starfað á fjármálamarkaði við margvísleg stjórnunar- og sérfræðistörf í 23 ár.

Hann starfaði hjá Stefni á tímabilinu 2003 til 2008 og aftur 2013 til 2017 þegar hann veitti skuldabréfateymi félagsins forstöðu og var staðgengill framkvæmdastjóra. Frá árinu 2017 hefur hann starfað sem útlánastjóri Arion banka og frá árinu 2019 sem forstöðumaður fyrirtækja innan fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs bankans.

Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis:

„Það er mikið tilhlökkunarefni að ganga aftur til liðs við Stefni og þann öfluga hóp starfsfólks sem þar starfar. Félagið hefur um árabil verið í forystu á sjóðastýringarsviði og er í kjörstöðu til að nýta þau tækifæri sem eru til staðar til frekari vaxtar."

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, stjórnarformaður Stefnis:

„Ég býð Jón velkominn til Stefnis. Hann býr yfir afar mikilli reynslu af fjármálamarkaði og þekkir Stefni vel og fyrir hvað félagið stendur. Framundan eru spennandi tímar á þessum vettvangi sem kalla á fagmennsku, þekkingu og frumkvæði."