Jón Friðrik Þorgrímsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hlöllabáta ehf, en hann tekur við stöðunni af Sigmari Vilhjálmssyni. Hlöllabátar reka samnefnda keðju ásamt veitingastaðnum Barion í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Jón Friðrik er uppalinn á Húsavík en hefur búið og starfað bæði á Akureyri og Reykjavík síðustu ár. Hann er menntaður matreiðslumeistari og hefur undanfarin ár starfað sem stjórnandi í veitingaiðnaði. Jón Friðrik var veitingastjóri hjá Kea hótelum frá árinu 2013 til ársins 2020 eða þar til hann var ráðinn til Hlöllabáta, þar sem hann hefur síðustu mánuði gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs.

Jón Friðrik, nýr framkvæmdastjóri Hlöllabáta:

„Ég er mjög spenntur að taka við starfi framkvæmdastjóra hjá jafn öflugu fyrirtæki og samstæða Hlöllabáta er. Þetta eru krefjandi tímar og það hefur verið lærdómsríkt að standa í veitingarekstri. Það er mikill hugur og samstaða í hópnum og hefur starfsfólkið staðið sig gífurlega vel og ætlum við okkur að stefna áfram veginn og reyna að gera enn betur."