Það skiptir miklu máli að vera með gott að aðgengi að erlendum mörkuðum. Þetta segir Jón Garðar Guðmundsson, aðstoðarforstjóri Icelandic.

Hann fjallaði um íslenskan sjávarútveg á fundi Íslandsbanka í morgun þar sem ný skýrsla um sjávarútveginn var kynnt. Jón Garðar segir fyrirtækið stefna á mikinn vöxt í Kína.