Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, var í dag kosinn forseti Bernarsamningsins á aðildarríkjafundi samningsins í Strasborg í Frakklandi. Bernarsamningurinn fjallar um verndun villtra plantna, dýra og lífsvæða í Evrópu og er einn af grundvallar samningum Evrópu á sviði umhverfisverndar.

Tæplega fimmtíu ríki Evrópu og Norður-Afríku eru aðilar að samningnum. Forseti Bernarsamningsins stýrir starfsemi hans og aðildarríkjafundum. Jón Gunnar var varaforseti samningsins í þrjú ár en er nú fyrsti Íslendingurinn sem kosinn er forseti hans.

Í tilkynningu vegna kjörsins segir að markmið Bernarsamningsins er að stuðla að fjölþjóðlegri samvinnu til að vernda evrópskar tegundir villtra plantna og dýra og lífsvæði þeirra, einkum þeirra tegunda og lífsvæða sem fjölþjóðlegrar samvinnu þarf til að vernda. Samkvæmt ákvæðum samningsins ber ríkjum að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að viðhalda, eða aðlaga, stofnstærð villtra dýra og plantna, í samræmi við vistfræðilegar, vísindalegar og menningarlegar kröfur.

Bernarsamningurinn mun á næstu misserum öðlast aukið hlutverk þegar hann verður gerður að einum þeirra svæðisbundnu samninga sem notaðir verða til að framfylgja samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.