Jón Gunnarsson alþingismaður og formaður Atvinnuveganefndar Alþingis býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi 10. september næstkomandi.

„Ég óska eftir stuðningi til að skipa 2. sæti framboðslistans í komandi Alþingiskosningum.

Á þeim níu árum sem ég hef setið á Alþingi hef ég tekist á við fjölmörg krefjandi verkefni og aflað mér dýrmætrar reynslu og þekkingar á verkefnum Alþingis,“ segir Jón í yfirlýsingu.

Fyrst kosinn á þing 2007

Jón var fyrst kosinn til setu á Alþingi árið 2007 og á þessu kjörtímabili hefur hann verið formaður Atvinnuvegar Alþingis, en undir þá nefnd falla öll málefni ferðaþjónustu, iðnaðar, landbúnaðar og sjávarútvegs.

„Sjálfur bý ég yfir fjölbreyttri reynslu úr atvinnulífinu m.a. eftir að hafa lengst af rekið eigin fyrirtæki, en einnig í félagsmálum eftir að hafa verið í forystusveit björgunarsamtaka okkar í meira en 25 ár, þar af sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar í 5 ár. Þessi reynsla hefur reynst mér gott vegarnesti á vettvangi þingsins.“