Ákveðið hefur verið að Jón Þórisson aðstoðarforstjóri Íslandsbanka hætti störfum í bankanum. Ágreiningur varð milli forstjóra og Jóns sem ekki varð brúaður. Í tilkynningu frá Íslandsbanka kemur fram að bankinn vill þakka Jóni fyrir vel unnin störf á starfstíma hans hjá bankanum.