Jón Ingi Benediktsson framkvæmdastjóri Líftæknisjóðsins mun láta af störfum um næstu mánaðamót til að taka við starfi forstöðumanns Matvælaseturs Háskólans á Akureyri.

Á aðalfundi félagsins kynnti stjórnarformaður þess hugmyndir stjórnar um að afskrá félagið frá Kauphöll Íslands, og komu ekki fram neinar mótbárur gegn þeirri hugmynd. Verður tillaga þar að lútandi tekin til afgreiðslu á næsta stjórnarfundi í félaginu.