Jón Kaldal, ritstjóri Fréttatímans, hefur selt hlut sinn í blaðinu. Kaupendur eru aðrir hluthafar. Jón hefur í kjölfar þessara viðskipta látið af starfi ritstjóra og tekur Jónas Haraldsson við af honum sem ritstjóri. Er sagt frá þessu á Eyjunni . Jónas er einn af stofnendum Fréttatímans og hefur verið ritstjórnarfulltrúi.

Eftir breytinguna eru hluthafar Fréttatímans: Teitur Jónasson, Valdimar Birgisson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Jónas Haraldsson og Haraldur Jónasson.