Breyting varð á þingflokksformennsku Frjálsynda flokksins nú síðdegis þegar Jón Magnússon var kjörinn nýr þingflokksformaður flokksins fyrir komandi löggjafarþing.

Það var Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins sem bar upp tillöguna en þetta kemur fram í tilkynningu frá Frjálslynda flokknum.

Kristinn H. Gunnarsson fráfarandi þingflokksformaður mun taka við varaformennsku og Grétar Mar Þórðarson verður meðstjórnandi þingflokksins.

Tillaga formannsins var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.