Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Jón Magnússon viðskiptafræðing, MBA, til að vera skrifstofustjóri rekstrar- og fjármálaskrifstofu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins frá og með 1. október nk. til fimm ára.

Jón var settur skrifstofustjóri í ráðuneytinu frá september 2007 til ágúst 2008. Hann starfaði áður í fjármálaráðuneytinu.

Aðrir umsækjendur um starfið voru Agnes Karlsdóttir og Jón Einar Sverrisson.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.