Jón Brynjar Ólafsson leiðir nýtt fjármálasvið Advania sem sameinar reikningshald og hagdeild félagsins. Fjármálasviðið er hluti af þjónustu- og rekstrarsviði Advania og meðal verkefna þess eru tekju- og kostnaðarskráning, uppgjörsvinna ásamt innri og ytri greiningarvinnu.

Jón Brynjar hefur starfað hjá Advania í rúm þrjú ár, fyrst sem sérfræðingur og svo sem forstöðumaður hagdeildar. Hann er með meistaragráðu í fjármálum og stefnumótandi stjórnun frá Copenhagen Business School.

Jón Brynjar hefur sérhæft sig Beyond Budgeting stjórnunarmódelinu sem leggur áherslu á að færa fyrirtæki frá hugmyndafræði hefðbundinna fjárhagsáætlana yfir í dreifstýrðara stjórnunarkerfi til að stuðla að betri aðlögunarhæfni í rekstrinum.

Advania á Íslandi hóf vegferð sína í Beyond Budgeting fyrir nokkrum árum og hefur Jón Brynjar leitt það verkefni frá því hann gekk til liðs við félagið.