Jón Ómar Erlingsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Bílabúðar Benna.

Frá 2008 hefur Jón Ómar starfað sem framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Odda. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Kassagerðarinnar og sem framkvæmdastjóri tekjustýringar og viðskiptaþróunar hjá Iceland Express.

Jón Ómar er með M.S. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.